8. sæti í Reykjavík
Ég er trésmiður að mennt og fv. slökkviliðsmaður. Hef verið varaborgarfulltrúi kjörtímabilin 2006-2010, 2010-2014 og þetta kjörtímabil 2014-2018.
Var í stjórn Félags sjálfstæðismanna í Árbæ, Selási, Ártúns- og Norðlingaholti frá 1990 og formaður frá 1997- 2010 (13 ár), sit nú í varastjórn félagsins. Í stjórn Varðar, fulltrúarráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík frá 1997 – 2012. Sat í kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar 2003. Hef tekið þátt í fjölmörgum nefndarstörfum á vegum Reykjavíkurborgar s.s. Íþrótta- og tómstundaráði, Mannréttindaráði, Velferðaráði, Hverfisráði Árbæjar og formaður þar um tíma. Hef setið á þessu kjörtímabili í Stjórnkerfis- og lýðræðisráði, Mannréttindaráði, Innkauparáði, Heilbrigðisnefnd og Hverfisráði Árbæjar. Var í aðalstjórn Íþróttafélagsins Fylkis frá 2001 til 2007. Formaður Íþróttafélagsins Fylkis frá 2011.
Hóf nám í trésmíði 1974 hjá Emil Hjartarsyni í Trésmiðjunni Meið. Fékk meistararéttindi 1982. Hóf störf hjá Slökkviliði Reykjavíkur árið 1981 síðar Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og varð þar varðstjóri og síðar sviðsstjóri. Sinnti þar fjölbreyttum störfum s.s. kennslu og forvörnum auk þess að annast stjórnun á sviði almannavarna. Varð framkvæmdastjóri SHS fasteigna ehf. 2001 sem er dótturfélag Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs.
Sem slökkviliðsmaður var ég virkur í félagsmálum. Sat í stjórn Brunavarðafélags Reykjavíkur í sex ár, lengst af sem varaformaður. Formaður Landssambands sjúkraflutningamanna frá 1994 – 1997. Í stjórn Landssambands slökkviliðsmanna frá 1987 – 1989. Í sjúkraflutningaráði landlæknis frá 1994 – 1998. Átti sæti í stjórn Sjúkraflutningaskólans og í skólaráði Brunamálaskólans.
Ég fæddist í Hafnarfirði 1955 en ólst upp í Vogahverfinu í Reykjavík. Er sonur Kristínar S. Björnsdóttur kennara og Gísla T. Guðmundssonar póstfltr. og á tvö systkini, Kristínu og Örn.
Er kvæntur Karólínu Gunnarsdóttur og eigum við þrjú börn og fimm barnabörn.
Keppti lengi í handbolta með Fram á mínum yngri árum.