„Löngu tímabært að ráðast í breytingar til að bæta aðbúnað fanga.“

„Það er löngu tímabært að ráðast í breytingar til að bæta aðbúnað fanga og að raunveruleg betrun eigi sér stað í fangelsum landsins. Stór hluti fanga hefur lent í áföllum, meirihluti glímir við vímuefnavanda og endurkomutíðni í fangelsi er allt of há,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra en hún hefur samþykkt aðgerðaráætlun um aðgerðir í heilbrigðismálum í fangelsum og úrræði vegna vímuefnavanda fanga. Aðgerðaráætlunin var einnig samþykkt af heilbrigðisráðherra.

Aðgerðaráætlunin felur í sér þrjár meginaðgerðir, þ.e. eflingu heilbrigðisþjónustu, skilgreiningu verklags og ábyrgðar í innri starfsemi fangelsanna vegna breytinga á heilbrigðisþjónustu og þarfagreiningu og aðgerðaráætlun til að sporna við dreifingu og neyslu vímugjafa á Litla Hrauni.

Vinna við gerð aðgerðaráætlunarinnar hefur staðið frá 5. júlí sl., þegar þáverandi dómsmálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, skipaði starfshóp til að taka til skoðunar heilbrigðisþjónustu í fangelsum, einkum geðheilbrigðisþjónustu og úrræði vegna vímuefnavanda og vinna drög að aðgerðaráætlun.

Aðgerðaráætlun um heilbrigðisþjónustu fanga

🗝 Stór hluti fanga hafa orðið fyrir áföllum, meirihluti glímir við vímuefnavanda og endurkomutíðni er alltof há. Raunveruleg betrun þarf að eiga sér stað í fangelsum landsins. Frels­is­svipt­ing er afar íþyngj­andi aðgerð og henni fylg­ir mik­il ábyrgð. Stjórn­völd­um ber að standa und­ir þeirri ábyrgð. Aðgerðaráætlun til að efla heilbrigðisþjónustu og úrræði vegna vímuefnavanda innan fangelsanna er tilbúin og hér fer ég yfir hana í stuttu máli. 🔗 https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2019/12/11/Adgerdaraaetlun-um-heilbrigdismal-fanga/

Posted by Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir on Miðvikudagur, 11. desember 2019