„Það er löngu tímabært að ráðast í breytingar til að bæta aðbúnað fanga og að raunveruleg betrun eigi sér stað í fangelsum landsins. Stór hluti fanga hefur lent í áföllum, meirihluti glímir við vímuefnavanda og endurkomutíðni í fangelsi er allt of há,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra en hún hefur samþykkt aðgerðaráætlun um aðgerðir í heilbrigðismálum í fangelsum og úrræði vegna vímuefnavanda fanga. Aðgerðaráætlunin var einnig samþykkt af heilbrigðisráðherra.
Aðgerðaráætlunin felur í sér þrjár meginaðgerðir, þ.e. eflingu heilbrigðisþjónustu, skilgreiningu verklags og ábyrgðar í innri starfsemi fangelsanna vegna breytinga á heilbrigðisþjónustu og þarfagreiningu og aðgerðaráætlun til að sporna við dreifingu og neyslu vímugjafa á Litla Hrauni.
Vinna við gerð aðgerðaráætlunarinnar hefur staðið frá 5. júlí sl., þegar þáverandi dómsmálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, skipaði starfshóp til að taka til skoðunar heilbrigðisþjónustu í fangelsum, einkum geðheilbrigðisþjónustu og úrræði vegna vímuefnavanda og vinna drög að aðgerðaráætlun.
Aðgerðaráætlun um heilbrigðisþjónustu fanga
🗝 Stór hluti fanga hafa orðið fyrir áföllum, meirihluti glímir við vímuefnavanda og endurkomutíðni er alltof há. Raunveruleg betrun þarf að eiga sér stað í fangelsum landsins. Frelsissvipting er afar íþyngjandi aðgerð og henni fylgir mikil ábyrgð. Stjórnvöldum ber að standa undir þeirri ábyrgð. Aðgerðaráætlun til að efla heilbrigðisþjónustu og úrræði vegna vímuefnavanda innan fangelsanna er tilbúin og hér fer ég yfir hana í stuttu máli. 🔗 https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2019/12/11/Adgerdaraaetlun-um-heilbrigdismal-fanga/
Posted by Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir on Miðvikudagur, 11. desember 2019